Línumenn að störfum um miðbik 20. aldarinnar.
             
Landlínan komin áleiðis upp Fjarðarheiði 1906
          
 Línumenn 

  Lagning landsímans var á sínum tíma mesta verkfræðiafrek sem hérlendis hafði verið unnið. Landlínan frá Seyðisfirði, norður um Hrútafjörð til Reykjavíkur var 614 km og voru settir upp 14.000 símastaurar. Viðurinn var nýlega hogginn og enn blautur og því var flutningur stauranna um landið enn erfiðari en ella. Dugnaðarforkurinn Björn Bjarnarson var milligöngumaður Forbergs um samninga við bændur og þakkaði Forberg honum að flutningur stauranna hafi ekki farið langt fram úr áætluðum kostnaði.

LOKA GLUGGA - TIL BAKA

 

LOKA GLUGGA - TIL BAKA